Þú ert hér://Tag: Ólafur Darri Ólafsson

Amlóði fer enn á kreik

2019-06-12T11:34:40+00:0012. janúar 2014|

Þá er það opinbert: Ólafur Darri Ólafsson er kominn í röð þeirra stærstu í sínu fagi, að minnsta kosti hér á landi. Hann er einhver besti og mest sannfærandi Hamlet sem ég hef séð á sviði og sýning Jóns Páls Eyjólfssonar á verkinu sem frumsýnd var á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi hefur alla burði [...]

Að gæta bróður síns

2019-06-18T17:31:31+00:0030. desember 2012|

Þær voru ólíkar eins og stundum áður jólasýningar stóru leikhúsanna í Reykjavík. Í Macbeth Þjóðleikhússins var stílfærsla í algleymingi með tilfærslu í tíma og allt; í Músum og mönnum Leikfélags Reykjavíkur á stóra sviði Borgarleikhússins ríkir hefðbundið raunsæi, svo rækilega útfært að jaðrar við ofurraunsæi. En mig langar til að segja það strax að eftirbragðið [...]

Saga um háar hugsjónir, ást – og svik

2019-08-08T15:18:19+00:0024. apríl 2010|

Best að segja það strax: Sýning Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness er vel heppnuð. Um margt ólík öllum þeim sex uppsetningum sem ég hef séð áður á verkinu, um margt hugmyndaríkari, beinskeyttari, pólitískari, efnismeiri jafnvel, bæði af því að sýningin er löng og svo er svið Finns Arnars Arnarsonar svo haglega gert að enginn [...]

Saga af görpum

2019-08-08T14:56:17+00:0013. febrúar 2010|

Gerpla Halldórs Laxness, saga fóstbræðranna Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðs Bessasonar Kolbrúnarskálds, er glæsilegt verk sem hefur margt til að laða að sér breiðan hóp lesenda: mikla atburðarás og lifandi lýsingar á stórum og smáum viðburðum, spennu og ofbeldi, óleyfileg erótísk sambönd, einlæga vináttu og heitar ástir. Hún hefur fornlegan stíl, er fyndin og hefur djúpan [...]

Frida, Harry og Heimir

2020-01-30T16:43:17+00:0013. september 2009|

Stóru leikhúsin opnuðu dyr sínar fyrir fyrstu gestum haustsins um helgina og hófu bæði vetrarstarfið á íslenskum verkum. Það var um það bil það eina sem þau áttu sameiginlegt. Á stóra sviði Þjóðleikhússins var okkur sögð saga mexíkóska myndlistarmannsins Fridu Kahlo á föstudagskvöldið, átakanleg ævisaga vörðuð slysum og svikum; á litla sviði Borgarleikhússins var á [...]