Þú ert hér://Tag: Oddur Júlíusson

Glanni glæpur slær loksins í gegn

2019-05-27T13:46:45+00:0015. september 2014|

Glanni glæpur, önnur þekktasta persóna Latabæjarsjónvarpsþátta Magnúsar Scheving,  þreytist seint á að ergja sig á fólki sem stundar íþróttir og borðar hollan mat. Maður hefði kannski haldið að hann lærði eitthvað á síendurteknum misheppnuðum tilraunum sínum til að fá íbúa Latabæjar ofan af þessu en – nei. Hann er enn að og nú (aftur) á [...]

Salem í samtímanum

2019-06-04T08:04:55+00:0028. apríl 2014|

Mér er enn í furðu fersku minni uppsetning Stefans Metz á Krítarhringnum í Kákasus eftir Brecht í Þjóðleikhúsinu fyrir fimmtán árum og hlakkaði mikið til að sjá Eldraunina hans á sama sviði í ár. En Eldraunin er að sjálfsögðu allt öðruvísi verk og þar eru brellur leiksviðsins óþarfar og jafnvel til bölvunar. Sýningin er vissulega [...]

„Líttu alltaf á lífsins björtustu hlið“

2019-06-12T10:59:54+00:0022. febrúar 2014|

Eitt er alveg víst: Félagarnir snjöllu í Monty Python hafa haft óstjórnlega gaman af að setja saman upprunalega verkið sem núna heitir Spamalot og var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Hilmis Snæs Guðnasonar. Þetta er grín á sögur sem þeir hafa lesið í skóla og utan skóla þegar þeir voru krakkar [...]

„Út um trissur alls staðar eru tómir óvitar“

2019-06-12T14:50:15+00:0014. október 2013|

Barnaleikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins í gær, landsins börnum til mikillar ánægju. Gunnar Helgason stýrir því af sínu alkunna fjöri og hugmyndaauðgi og Ilmur Stefánsdóttir gerir litríka leikmynd sem er heilt ævintýri fyrir unga áhorfendur. Leikarar eru geysimargir og allt á iði á sviðinu í senum sem gerast utanhúss. Innanhúss [...]

Drauma-Smiðjan

2019-06-15T15:40:10+00:0024. mars 2013|

Ég fann fyrir tilfinningu eftir sýningu Nemendaleikhússins á Draumi á Jónsmessunótt í Smiðjunni í gærkvöldi sem sumt leikhúsfólk hefur fjölyrt um í ævisögum sínum: ég vildi að sýningin væri ekki búin heldur héldi áfram – eða byrjaði upp á nýtt! Mig langaði ekki til að rjúfa töfrana og fara út úr húsinu. Leikritið er auðvitað [...]