Ævintýri í Úganda
Nemendur í Flensborg frumsýndu í gærkvöldi söngleikinn Mormónabókina eftir Trey Parker, Robert Lopez og Matt Stone í Gaflaraleikhúsinu. Þýðandi og leikstjóri með meiru er Björk Jakobsdóttir, Þórunn Lárusdóttir stjórnaði söng, tónlistarstjóri er Hallur Ingólfsson en Óli Gunnar Gunnarsson sá um dansatriðin. Þetta er nýlegur söngleikur, frumsýndur á Broadway 2011, vel þekktur og verðlaunaður en hafði [...]