Stjarna fædd

2019-03-18T13:29:53+00:0010. mars 2019|

Það mega landar mínir eiga að þeir vita hvenær þeir verða vitni að listrænum stórviðburði. Í lok frumsýningar í Íslensku óperunni í gærkvöldi var hverjum hópnum af öðrum fagnað vel og innilega: dönsurum, fjölmennum Kór Íslensku óperunnar, einsöngvurum. Hrólfur Sæmundsson (Giorgio Germont) fékk innilegt lófatak þegar hann gekk inn þriðji síðastur. Næstur kom Elmar Gilbertsson [...]