Grímur sem leika

2019-06-18T12:29:34+00:0027. janúar 2013|

Látbragðsleiknum Hjartaspöðum sem Skýjasmiðjan sýnir í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði hefur verið tekið mjög hlýlega. Aðstandendum hefur líklega ekki dottið í hug að orðalaust klukkutímaverk um vistmenn og starfsfólk á elliheimili myndi freista margra, alltént voru einungis áætlaðar fjórar sýningar í byrjun. En viðbrögð gagnrýnenda hafa verið einróma lof, aðrir gestir hafa lagt sitt af mörkum [...]