Veröld sem var
Það var kannski heppilegt að komast ekki á frumsýninguna á Insomnia í Kassanum á miðvikudagskvöldið. Alltént voru á sýningunni í gær að því er virtist eintómir aðdáendur Friends-þáttanna sem verkið snýst um og héldu uppi stuði allan tímann. Insomnia er samvinnuverkefni Þjóðleikhússins, leikhópsins Stertabendu og Everybody's Spectacular-hátíðarinnar. Verkið er samið af Amalie Olesen og leikhópnum [...]