Í skugga Shakespeares
Nemendur í Söngskóla Sigurðar Demetz frumsýndu í gær í Gaflaraleikhúsinu söngleikinn Something Rotten eftir sögu Johns O'Farrell og Kareys Kirkpatrick en tónlist og söngtextar eru eftir bræðurna Karey og Wayne Kirkpatrick. Þetta er svo til glænýr söngleikur, frumsýndur á Broadway vorið 2015 og sló í gegn þó að ekkert lag úr honum hafi orðið almenningseign. Sagan er óttalegt bull [...]