Fjörugur og fyndinn hráskinnaleikur

2019-03-15T09:56:57+00:0021. apríl 2018|

Leikfélagið Hugleikur frumsýndi sína fyrstu sýningu í nýju Hugleikshúsi við Langholtsveg í gærkvöldi. Húsið er þekkt sem Fóstbræðraheimilið en gestir Hugleikara ganga inn baka til. Þetta er góður staður og fer vonandi vel um félagið þar. Nýja verkið heitir Hráskinna og er eftir þekkt Hugleiksskáld, Ármann Guðmundsson, Ástu Gísladóttur, Sigríði Báru Steinþórsdóttur og Þorgeir Tryggvason, [...]