Ástin hefur … hendur sundurleitar
Íslenska óperan frumsýndi í gærkvöldi glæsilega uppsetningu Benjamins Levy hljómsveitarstjóra og Anthonys Pilavachi leikstjóra á óperunni Évgení Onegin eftir Tchaikovsky. Þetta er upphaflega söguljóð eftir þjóðskáld Rússa, Alexander Púshkin (1799–1837), sem var geysilega vinsælt meðal landa hans en lifir utan Rússlands fyrst og fremst í þeirri mynd sem Tchaikovsky gaf því. Texti óperunnar er eftir [...]