Þú ert hér://Tag: Hilmar Jónsson

Ævintýri Djöfulsins í Moskvu

2019-12-27T16:36:07+00:0027. desember 2019|

Rithöfundar eru öfundsverðir, sérstaklega skáldsagnahöfundar. Þeir geta búið til nýjan veruleika og haft hann algerlega eins og þeim sýnist, látið hvað sem er gerast og notið þess. Þetta nýtti rússneska sagnaskáldið Mikhaíl Búlgakov sér rækilega í Meistaranum og Margarítu, en leikgerð Niklas Rådström af þeirri sögu var frumsýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi undir [...]

Um hunda og menn

2019-06-04T08:33:15+00:0014. mars 2014|

Stundum er forvitnilegt að fara á leiksýningu þegar margir eru búnir að tjá sig um hana, einkum ef þeir eru ekki sammála, og bera eigið mat saman við mat hinna. Gagnrýnendur Djöflaeyjunnar voru til dæmis ekki hrifnir af Furðulegu háttalagi hunds um nótt í Borgarleikhúsinu en Hlín Agnarsdóttir gaf fjórar og hálfa stjörnu í DV, [...]

Amlóði fer enn á kreik

2019-06-12T11:34:40+00:0012. janúar 2014|

Þá er það opinbert: Ólafur Darri Ólafsson er kominn í röð þeirra stærstu í sínu fagi, að minnsta kosti hér á landi. Hann er einhver besti og mest sannfærandi Hamlet sem ég hef séð á sviði og sýning Jóns Páls Eyjólfssonar á verkinu sem frumsýnd var á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi hefur alla burði [...]

Fangar hrunsins

2019-06-18T12:24:55+00:002. febrúar 2013|

Í leikritinu Nóttin nærist á deginum sem var frumsýnt á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi notar höfundurinn, Jón Atli Jónasson, tvö ágeng fréttaefni frá síðustu árum og fléttar þau saman. Þetta eru annars vegar hrunið sem hefur skilið hjónin í verkinu eftir á eins konar eyðiey, í hálfkláruðu húsi í hverfi sem aldrei var byggt, [...]