Að tala – eða ekki tala
Einþáttungurinn Verkið eftir Jón Gnarr var frumsýnt í Þjóðleikhúskjallaranum í hádeginu í dag. Það hefur ekki gengið alveg nógu vel gegnum tíðina að fá borgarbúa til að koma í hádegisleikhús og mér finnst fallegt af Þjóðleikhúsinu að gefast ekki upp. Haustið 2021 voru sýnd tvö bráðskemmtileg verk í hádeginu í Kjallaranum, Út að borða með [...]