Dásamlegt líf í Oz

2019-08-23T15:39:14+00:0018. september 2011|

Fyrsta sýningin á stóra sviði Borgarleikhússins á leikárinu er ætluð börnum en ekki síður fullorðnum, enda mikil leikhúsveisla þar sem öll brögð leikhússins, forn og ný, eru nýtt undir hugmyndaríkri stjórn Bergs Þór Ingólfssonar sem einnig þýðir verkið. Þetta er gamalt verk, saga Franks Baum um Galdrakarlinn í Oz er meira en aldargömul og söngleikur [...]