Tár, bros og töfraskór
Guðni Th. Jóhannesson. Gunnar Thoroddsen – ævisaga. JPV útgáfa, 2010. Úr Tímaritit Máls og menningar 3. hefti 2011 Sumarið 1980, voru enn hveitibrauðsdagar ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens. Stjórnin var mynduð í febrúar sama ár og naut í fyrstu slíkra vinsælda í skoðanakönnunum að fátítt mátti heita í lýðræðisríki. Stjórnin naut meira að segja stuðnings meirihluta kjósenda [...]