Þú ert hér://Tag: Guðrún Bjarnadóttir

Myndir af skuggahliðinni

2019-09-28T12:23:00+00:0028. september 2019|

Leikhópurinn RaTaTam frumsýndi í gærkvöldi verk sitt HÚH! Best í heimi á litla sviði Borgarleikhússins undir stjórn Charlotte Bøving. Þar skoða þau sjálfsmynd Íslendinga í gegnum sögur úr eigin lífi og sínar eigin sjálfsmyndir og eru ekki miskunnsöm í sinn garð eða okkar hinna. Við erum kannski glæsileg á að líta, vel klædd, glaðleg í [...]

Getur þetta gerst hér?

2019-03-13T17:11:18+00:004. september 2018|

Hannesarholt troðfylltist óvænt í gærkvöldi þegar nýtt verk var leiklesið þar, Fáir, fátækir, smáir, eftir höfund sem ekki vildi láta nafns síns getið. Árni Kristjánsson leikstýrði og hafði hóað saman stórum hópi fagmanna til að flytja verkið. Helga Björnsdóttir sá um útlit sýningarinnar og Guðni Franzson um tónlistina. Fólk sem ólst upp við útvarpsleikritin sem [...]

… stundum er það líka verst

2019-05-03T17:01:34+00:0022. október 2016|

„Stundum er heima best, en stundum er það líka verst,“ söng Guðmundur Ingi Þorvaldsson háum karlaróm, sitjandi á hlálega litlum stól uppi á barborðinu, þegar gestir komu á frumsýningu Suss! í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Stundum tóku meðleikarar hans undir og smám saman fékk hann fleiri og fleiri frumsýningargesti með sér í viðlagið: „Heimilisofbeldi er mannréttindabrot, [...]

Ný Lokasenna

2019-08-08T15:35:01+00:0028. mars 2012|

Ég sá í gærkvöldi leikritið Gálmu (= ólag, vandræði) eftir Tryggva Gunnarsson sem leikhópurinn Sómi þjóðar sýnir nú í Norðurpólnum. Tryggvi stýrir verkinu sjálfur. Við erum stödd í íslenskri sveit en óljóst er nákvæmlega hvenær. Málfar persóna er yfirleitt fremur gamaldags og framan af hélt ég að ég væri stödd einhvers staðar um miðja tuttugustu [...]

Vandinn að vera unglingur

2020-01-30T11:46:32+00:0020. mars 2010|

Það vildi svo skemmtilega til í vikunni að ég sá tvo söngleiki um líf unglinga, sýningar sem gáfu mér óvænt tækifæri til að bera saman flutning framhaldsskólanema á verki um líf jafnaldra sinna og tilveru í samtímanum og lærðra leikara á þrítugs- og fertugsaldri sem freistuðu þess að flytja tveggja áratuga gamalt verk um reykvíska [...]