Skækjur, mæður, saumaklúbbsforsetar og aðrar kvenlegar verur

2022-10-04T10:21:35+00:004. október 2022|

Brynja Hjálmsdóttir: Kona lítur við. Una útgáfuhús 2021. 80 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2022. Ljóðið virðist blómstra þessi misserin. Ljóðaútgáfa er mikil, ljóðaupplestrar eru haldnir um allan bæ eða í streymi, ljóðum rignir inn í ljóðasamkeppnir og stöku ljóðabækur fá jafnvel gagnrýni í dagblöðum. Viðurkenningin Maístjarnan er veitt fyrir útgefna ljóðabók [...]