Þú ert hér://Tag: Guðjón Pedersen

Dagur í lífi Johnnys Roosters Byron

2019-06-18T11:59:19+00:0024. febrúar 2013|

Ég kom algerlega bláeygð á Fyrirheitna landið í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Af einhverjum ástæðum hafði ég ekkert heyrt og ekkert lesið um verkið, ekki einu sinni um öll verðlaunin og viðurkenningarnar sem það hefur fengið, bara séð auglýsingarmyndina af Hilmi Snæ á netbol, með lúmskt glott á fallegu andlitinu og sígarettu milli fingranna. Augljóst er [...]

Hann á afmæli ‘ann Stanley …

2019-08-08T15:30:12+00:0028. apríl 2012|

Ég veit ekki hvað gagnrýnendurnir sem rökkuðu Afmælisveisluna hans Harolds Pinter niður í London árið 1958 fundu að henni en ég ímynda mér að það hafi verið að hún gefur engin svör við gátum sínum. Verkið hagar sér eins og spennusaga en við fáum ekki að vita hver glæpurinn var eða hver það er sem [...]

„Sérðu línurnar?“

2019-08-23T14:41:08+00:0030. september 2011|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær á stóra sviðinu Listaverkið eftir Yasminu Reza í þýðingu Péturs Gunnarssonar. Margir muna eftir sýningu á sama verki á árunum 1997-8 og svo skemmtilega vill til að leikararnir eru þeir sömu nú og þá og leika sömu hlutverk undir stjórn sama leikstjóra, Guðjóns Pedersen. Sviðshönnuður er einnig sá sami, Guðjón Ketilsson, [...]