Hin nýja búfjárrækt Íslendinga
Bjartmar Þórðarson leikari og leikstjóri frumsýndi nýtt leikrit í Tjarnarbíó í gær ásamt leikhópnum Þurfandi: svörtu kómedíuna Gripahúsið sem hann leikstýrir sjálfur. Þetta er fyrsta verk hans í atvinnuleikhúsi og lofar nokkuð góðu. Stíllinn rambar á barmi fáránleikans en þegar undir er meinleg árás á lífshætti Íslendinga á það vel við. Samtölin eru ágætlega skrifuð [...]