Þú ert hér://Tag: Gísli Rúnar Jónsson

Ríkisbubbinn, eiginkonan, viðhaldið og kokkurinn

2019-10-12T18:20:22+00:0012. október 2019|

Sex í sveit í uppsetningu Borgarleikhússins er blessunarleg hlátursprengja nú sem fyrr. Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri hefur valið vel í hlutverkin, þarna eru leikarar sem víla ekki fyrir sér að halda uppi sturluðu fjöri í hátt í þrjá klukkutíma en fá að vísu vel þeginn matartíma í miðju kafi. Verkið er eignað franska farsaskáldinu Marc [...]

Upp komast svik

2019-05-03T11:52:48+00:005. mars 2017|

Það var hamagangur á Hóli í gærkvöldi þegar Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi farsann Úti að aka eftir breska gamanleikjaskáldið Ray Cooney á stóra sviði Borgarleikhússins undir stjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Gísli Rúnar Jónsson þýddi leikinn og staðfærði og eins og vænta má af þessum nöfnum var árangurinn sprenghlægilegur. Í sögumiðju er leigubílstjórinn Jón Jónsson (Hilmir Snær [...]

Feður og sonur

2019-05-22T13:51:09+00:001. nóvember 2014|

Það var mikið hlegið í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi á frumsýningu farsans Beint í æð. Þar var farið yfir versta daginn í lífi Jóns Borgars (Hilmir Snær Guðnason), taugasérfræðings og yfirlæknis á Landakoti, en Gísli Rúnar Jónsson hefur þýtt og staðfært verk Rays Cooney, It runs in the family. Leikstjóri er Halldóra Geirharðsdóttir sem hefði líka [...]

Sléttfull matskeið af sykri

2019-06-18T12:08:47+00:0023. febrúar 2013|

Ofurbarnfóstran Mary Poppins sviptist með austanvindinum inn á sviðið í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi í skrautsýningu sem varla hefur áður sést slík og þvílík hér á landi. Söngleikurinn sem Richard og Robert Sherman sömdu ásamt Cameron Mackintosh upp úr kvikmyndinni frá 1964 og bókum P.L. Travers um söguhetjuna krefst margra sviðslistamanna og mikillar tækni og Borgarleikhúsmenn [...]

Líkagrín

2019-08-24T13:47:32+00:0026. febrúar 2011|

Það er þannig með farsa – eins og Nei, ráðherra sem LR frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins – að það má eiginlega ekkert segja um ganginn í þeim. Allt sem gerist verður að koma áhorfendum á óvart, annars gæti hláturinn látið á sér standa. Þetta gerir heldur ekkert til því það sem gerist [...]

Svart og hvítt

2020-01-30T14:58:18+00:0031. janúar 2010|

Leiksýningarnar tvær sem ég sá um helgina voru býsna ólíkar. Ekki segi ég kannski að ég hafi farið öfganna á milli en ekki langt frá því. Á föstudagskvöldið sáum við hjónin Tilbrigði við stef eftir Strindberg og Þór Rögnvaldsson í salnum uppi í Iðnó. Í gær lá leiðin á Algjöran Sveppa eftir Gísla Rúnar Jónsson í Íslensku óperunni. Hvort [...]

Rachel og Þórir

2020-01-31T15:39:29+00:0022. mars 2009|

Tveir ungir leikarar fengu að láta ljós sitt skína á litlum sviðum stóru leikhúsanna í vikunni sem leið. Þóra Karítas Árnadóttir túlkaði bandaríska píslarvottinn Rachel Corrie í lífi og dauða á litla sviði Borgarleikhússins undir stjórn Maríu Ellingsen, en á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins lék Þórir Sæmundsson – ja, einna helst lausum hala og laut engri utanaðkomandi [...]