Þú ert hér://Tag: Gísli Galdur Þorgeirsson

Leiðin að mennskunni

2026-10-17T14:00:20+00:0017. október 2026|

Það var mögnuð stemning í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi á frumsýningunni á Höggi eftir James Graham, manni fannst á löngum stundum að salurinn andaði ekki. Greinilegt var að hver einasti áhorfandi gat sett sig í spor fólksins á sviðinu og skilið hve óskaplega djúp spor eitt högg getur skilið eftir sig. Aðeins eitt högg – eða [...]

Andvökunótt á heimili hjartalæknisins

2025-02-08T12:50:02+00:008. febrúar 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi í Kassanum nýtt leikrit eftir Hrafnhildi Hagalín, Heim. Leikstjóri er þjóðleikhússtjóri sjálfur, Magnús Geir Þórðarson. Búninga og leikmynd hannaði Filippía I. Elísdóttir, lýsinguna Björn Bergsteinn Guðmundsson en algerlega göldrótt tónlistin var eftir Gísla Galdur Þorgeirsson. Heim er klassískt að byggingu, gerist á einum stað á tæpum sólarhring, frá síðdegi, yfir kvöld [...]

Tilboð dagsins

2023-05-15T12:18:29+00:0010. maí 2023|

Alltaf upplifir maður eitthvað nýtt! Í gærdag sá ég leiksýningu sem vissulega er á vegum Þjóðleikhússins en sýnd í Krónunni á Granda. Leikritið heitir Aspas og er eftir rúmenska leikskáldið Gianinu Cărbunariu. Það gerist í enskum stórmarkaði og leyfir okkur að fylgjast með hugsunum tveggja viðskiptavina, annars vegar eldri borgarans Georgs (Eggert Þorleifsson) og hins [...]