Kannski verður ljós
Gamli róttæklingurinn í mér er vel nærður eftir þessa helgi. Fyrir utan fimmtu sinfóníu Sjostakovitsj sem þykir ansi róttæk og Hertu Müller og Ingo Schulze sem töluðu af eigin reynslu um líf undir harðstjórn á Bókmenntahátíð í Reykjavík sá ég Zombíljóðin í Borgarleikhúsinu á föstudagskvöldið, “alvöru gagnrýnið samtímaverk” eins og segir í leikskrá, og Ge9n, [...]