Leikið á lofti
Írsk-íslensk samvinna ber fagran ávöxt í Fjaðrafoki, leiksýningu fyrir yngstu áhorfendurna eftir Chantal McCormick og Tinnu Grétarsdóttur sem frumsýnd var í Tjarnarbíó um helgina á vegum Bíbí & blaka og írska sirkusflokksins Fidget Feet. Ég var svo heppin að fá að sjá hana með tveim leikskólabekkjum tveggja til þriggja ára barna núna á mánudagsmorgni og [...]