Ást, hatur, þrá, ofbeldi
Napolí-fjórleikur Elenu Ferrante opnar lesanda sýn inn í líf tveggja stúlkna sem eru fæddar undir lok seinna stríðs í fátækrahverfi í Napolí á suður Ítalíu og um leið á umhverfi þeirra, „hverfið“, borgina og smám saman landið allt, söguna, pólitíkina og ekki síst kvennapólitíkina, eftir því sem þær stöllur vaxa úr grasi. Þessari sýn reyna [...]