Hann og Hún og sorgin
Leikritið Eitur eftir hollenska leikskáldið Lot Vekemans, sem nú er sýnt á litla sviði Borgarleikhússins í þjálli og hrynfagurri þýðingu Rögnu Sigurðardóttur, fjallar um ólíkar aðferðir til að vinna úr sorg eftir barnsmissi. Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir og naumhyggjulega en afar viðeigandi leikmyndina gerir Börkur Jónsson. Hún (Nína Dögg Filippusdóttir) og Hann (Hilmir Snær Guðnason) [...]