Kvöldstund með Gíslínu Martínu
Þær eru níu, hver annarri glæsilegri, jafnvel í barnalegum innigöllum leynir sér ekki hvað þær eru flottar. Svo syngja þær og leika, sviðsvanar og öruggar, á Litla sviði Borgarleikhússins: RVKDTR – Reykjavíkurdætur. Þær eru allar höfundar verksins en ein þeirra tekur ábyrgð á útkomunni, Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri, sem líka er ein í hópnum á sviðinu. [...]