„Mamma deyr og pabbi deyr og þú deyrð líka síðar meir“
Þessi glaðlega hending hér fyrir ofan er úr frumsömdu vöggukvæði eftir Charlotte Bøving sem hún syngur í uppistandssýningu sinni Ég dey á Nýja sviði Borgarleikhússins um þessar mundir. Þar fjallar hún um dauðann á ótrúlega margvíslegan hátt á ekki lengri kvöldstund, fræðilega og persónulega. Aðstoð við að leikstýra sjálfri sér fær hún frá Benedikt Erlingssyni [...]