Þú ert hér://Tag: Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir

… og svo kom rauða blaðran

2026-05-03T21:22:00+00:003. maí 2026|

Þeir hafa margt lært af meisturum látbragðsleiksins, piltarnir tveir sem frumsýndu verk sitt Innblástur í Tjarnarbíó í dag, til dæmis varð mér stundum hugsað til Nútímans eftir Chaplin og ekki leiðum að líkjast. Við erum stödd í verksmiðju, kannski að næturlagi. Einn vaktmaður (Nikulás Hansen Daðason) gengur sínar föstu eftirlitsferðir um svæðið uns hann verður [...]

Holdið er torvelt að temja

2025-02-07T14:31:09+00:007. febrúar 2025|

Það er óperuhátíð í Reykjavík. Þrjár óperur, tvær gamlar, ein ný, eru nú sýndar í þrem húsum í höfuðstaðnum. Svo skemmtilega vill til að þær fjalla allar meira og minna um sama fólkið og eins og það sé ekki nóg þá tengjast sýningarnar innbyrðis á hinn skondnasta máta: aðaldívan í einni er hljómsveitarstjóri í annarri, [...]

Eltum sjúklingana

2024-11-04T10:00:33+00:004. nóvember 2024|

Ég varð djúpt snortin á sýningu Óperudaga á Gleðilega geðrofsleiknum eftir Guðmund Stein Gunnarsson sem Sibylle Köll stjórnar. Umhverfið hafði sín áhrif. Sýningin var sett upp í MR, gamla menntaskólanum mínum, og þó að hún byrjaði á Sal og þættist ætla að vera venjuleg sýning fyrir sitjandi áhorfendur þá entist það ekki nema á að [...]

Tvær á trúnó

2023-07-03T10:55:47+00:003. júlí 2023|

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir og Sally Cowdin sýndu glænýtt verk sitt Release eða Létti í Mengi í gærkvöldi á Fringe hátíðinni fyrir yfirfullu húsi. Verkið sömdu þær sjálfar, upp úr eigin reynsluheimi að einhverju leyti, eftir því sem þær segja sjálfar, og Unnur Elísabet leikstýrir með aðstoð nokkurra góðra leikkvenna. Við erum stödd á salerni á [...]

Að glíma við sitt einka tígrisdýr

2023-01-09T13:43:23+00:008. janúar 2023|

Hvíta tígrisdýrið / Teikning: Pétur Atli Antonsson Hinn góði leikhópur Slembilukka frumsýndi í gær í samstarfi við Borgarleikhúsið barnasýninguna Hvíta tígrisdýrið eftir Bryndísi Ósk Þ. Ingvarsdóttur á Litla sviði hússins. Bryndís Ósk hannar líka búninga og leikmyndina sem er engin smásmíði en Eygló Höskuldsdóttir Viborg sér um hljóðmyndina og Kjartan Darri Kristjánsson um [...]

Hvers vegna geymum við?

2021-12-06T13:25:49+00:004. desember 2021|

Hugmyndaríku og eldfjörugu hæfileikabúntin í sviðslistahópnum Slembilukku, þær Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir, Eygló Höskuldsdóttir Viborg og Laufey Haraldsdóttir, frumsýndu í gærkvöldi í salnum á þriðju hæð Borgarleikhússins sýninguna Á vísum stað. Þær semja textann sjálfar og virðast líka sjá sjálfar um allt annað í sambandi við sýninguna. Ég hef orð listfræðingsins Halldóru Arnardóttur fyrir því að í [...]

Ekkert er að, ekki neitt

2020-09-07T22:01:55+00:007. september 2020|

Aðstandendur nýju óperunnar, Ekkert er sorglegra en manneskjan, sem var frumsýnd í Tjarnarbíó í gærkvöldi, hafa tekið áhorfendum sínum vara fyrir að sjá söguþráð út úr verkinu. Það er „póstdramatískt“, segja þeir Friðrik Margrétar-Guðmundsson tónskáld og Adolf Smári Unnarsson leikstjóri og textahöfundur. En það er hrikalega erfitt að byrja ekki undir eins að spinna sögu [...]