Þú ert hér://Tag: Auðunn Sölvi Hugason

Mannabörn, tröllabörn og ofurbörn

2022-03-23T12:58:00+00:0020. mars 2022|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær í kjallara Kassans barnaleikritið Umskipting eftir Sigrúnu Eldjárn undir stjórn Söru Martí Guðmundsdóttur. Þar hafði Snorri Freyr Hilmarsson leikmyndahönnuður snúið öllu á langveginn þannig að sviðið varð ógnarlangur klettaveggur með fosssprænum úr ljósi og hentugum mosagrónum syllum sem mátti leggjast í og klifra eftir. Þetta var bæði fallegt og bauð upp [...]

Eins og allir aðrir – bara spes

2019-10-20T13:45:34+00:0020. október 2019|

Mamma klikk eftir Gunnar Helgason er meðal vinsælustu íslensku barnabóka þessarar aldar en það lá alls ekki á borðinu að hægt væri að færa hana á svið með góðu móti. Eins og allir sem hafa lesið hana vita geymir hún óhemju stórt leyndarmál sem við komumst ekki að fyrr en í lokin – og verðum [...]