Ólánleg sólarlandaferð

2023-09-22T11:34:34+00:0022. september 2023|

Það var mikið hlegið í Tjarnarbíó í gærkvöldi á frumsýningu Pabbastráka eftir Hákon Örn Helgason og Helga Grím Hermannsson sem líka leika aðalhlutverkin. Persónurnar voru vissulega býsna hlægilegar en ennþá fyndnari heyrðist mér áhorfendum finnast vísanirnar til tímans þegar leikritið á að gerast – ársins minnisstæða 2007. Nýliðin þátíð er alltaf gott efni í grín [...]