Að eiga son eða syni

2019-08-24T13:43:10+00:005. mars 2011|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi sjónleikinn Allir synir mínir eftir Arthur Miller í nýrri munntamri þýðingu Hrafnhildar Hagalín og undir stjórn Stefáns Baldurssonar. Þetta er ríflega sextugt leikverk, fyrst sýnt 1947. Það gerist árið áður og sprettur beint upp úr darraðardansi heimsstyrjaldarinnar sem þá var nýlokið. Joe Keller (Jóhann Sigurðarson) verksmiðjueigandi býr við góð efni í [...]