Ævintýraheimur á háaloftinu
Þetta var almennileg þriggja sýninga helgi af því að ég var fyrst núna að sjá Aladdín hans Bernds Ogrodniks á Brúðuloftinu í Þjóðleikhúsinu. Þar fer Bernd alveg fram úr sjálfum sér í sköpun á töfraheimi Þúsund og einnar nætur með margturna höllum, glitrandi fjársjóðshellum, eyðimörkum, sölutorgum og miklum fjölda brúða af ýmsum stærðum, bæði strengjabrúða [...]