Íslensk auðstétt í spéspegli
Það ríkir glannalegt fjör og meinleg kæti í nýrri sýningu Leikfélagsins Geirfugls, (90)210 Garðabær, sem nú er sýnd í Kassa Þjóðleikhússins. Höfundur og leikstjóri er Heiðar Sumarliðason og hann skoðar hér æskustöðvarnar í spéspegli. Eiginlega erum við stödd í heilum spéspeglasal þar sem speglarnir ýkja og afskræma á ýmsa vegu, toga og teygja, beygla og [...]