Áskrift
Tímarit Máls og menningar er víðlesnasta menningartímarit Íslendinga og kemur út fjórum sinnum á ári – í febrúar, apríl/maí, september og nóvember. Ritstjórar eru Sigþrúður Gunnarsdóttir og Vera Knútsdóttir. Tölvupóstfang Tímaritsins er tmm@forlagid.is. Hvert hefti geymir greinar, viðtöl, pistla, nýsmíðar og gagnrýni af ýmsu tagi.
Ársáskrift að ritinu kostar 8.800 kr. (fjögur hefti) og er heimsending innifalin. Sé áskrifandi búsettur erlendis bætist sendingargjald við og er árgjaldið þá 10.600 kr. Áskrifendur fá því hvert hefti á aðeins 2.200 kr. (eða 2.650 kr.) með heimsendingu en fullt verð á hefti er 3.490 kr. Áskriftargjaldið er innheimt í byrjun árs eða við skráningu. Áskrift endurnýjast árlega sé henni ekki sagt upp. Sendir eru greiðsluseðlar til þeirra sem skrá sig hér fyrir neðan en kjósir þú frekar að greiða með kreditkorti má hringja í 575-5600.
Vilt þú gerast áskrifandi að Tímariti Máls og menningar?
Skráðu þig hér fyrir neðan og fáðu Tímaritið sent heim að dyrum, stútfullt af vandaðri menningarumfjöllun, ferskum skáldskap og gagnrýni.
