Að detta í tjörn – og náttúran opinberast

2025-02-13T10:28:32+00:0013. febrúar 2025|

Rán Flygenring: Tjörnin. Angústúra 2024. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2025. „Hundafiskur“!!! sagði þriggja ára snáði þegar afi var að lesa Tjörnina fyrir hann enn eina ferðina og dýralíf í ímyndaðri tjörn birtist, með moskítóflugum, froskum, skjaldböku, liljublómum og blöðum, hafmey og skrýtnum fiskum, einn þeirra var með stór eyru eins og á [...]