Þú ert hér://Tag: Þórður Orri Pétursson

Karamazov-fjölskylda á 21. öld

2019-06-19T11:08:48+00:0031. október 2012|

Það kemur fram í viðtali við Richard LaGravanese, annan höfund Bastarða sem nú eru sýndir í Borgarleikhúsinu, að innblásturinn hafi þeir Gísli Örn Garðarsson fengið úr skáldsögu Dostojevskís, Karamazov-bræðrunum. Þaðan spretta persónur verksins og litríkur textinn er undir áhrifum þaðan. Vissulega eru Bastarðar einfalt verk miðað við geysilanga og flókna skáldsöguna en írónían er lúmskari [...]

Fjör á Hótel Volkswagen

2019-08-08T15:43:39+00:0025. mars 2012|

Gáta (eða brandari): Hvað komast margir fílar inn í Volkswagen bjöllu? Svar: Fimm. Þrír afturí og tveir frammí. Á Hótel Volkswagen í Borgarleikhúsinu eru líka fimm fílar – ég meina gestir – í skjóli hótelstjórans, Svenna (Hallgrímur Ólafsson). Einn gamall nasisti, Ludvig Rosencrantz (Þorsteinn Gunnarsson), hjónin Adrian Higgins (Halldór Gylfason) og Paul Jenkins (Jörundur Ragnarsson) [...]

Er Valgerður betri María en Júlía?

2020-01-31T15:19:50+00:009. maí 2009|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi söngleikinn sígræna Söngvaseið á stóra sviði Borgarleikhússins í þýðingu Flosa Ólafssonar. Gersamlega óþarft er að tíunda efni og boðskap þessa verks sem allir þekkja, það eina sem spurt er um er hvernig tekst til með sviðsetninguna: Nær hún máli miðað við fyrri uppsetningar sem fólk hefur séð hérlendis og erlendis [...]