… stundum er það líka verst
„Stundum er heima best, en stundum er það líka verst,“ söng Guðmundur Ingi Þorvaldsson háum karlaróm, sitjandi á hlálega litlum stól uppi á barborðinu, þegar gestir komu á frumsýningu Suss! í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Stundum tóku meðleikarar hans undir og smám saman fékk hann fleiri og fleiri frumsýningargesti með sér í viðlagið: „Heimilisofbeldi er mannréttindabrot, [...]