Þú ert hér://Tag: Stefanía Adolfsdóttir

Út yfir gröf og dauða

2019-05-20T16:19:04+00:0021. mars 2015|

Í gærkvöldi frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur nýtt leikrit, Er ekki nóg að elska, eftir eitt helsta núlifandi leikskáld okkar, Birgi Sigurðsson, á Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri var Hilmir Snær Guðnason sem lék aðalhlutverkið í síðasta sviðsverki Birgis, Dínamíti, og leikstýrði síðustu uppsetningu á Degi vonar, þekktasta verki hans. Vytautas Narbutas gerir leikmyndina sem er stórglæsileg og [...]

Á sjó

2019-06-04T08:28:43+00:0022. mars 2014|

Fyrsta leikrit Kristínar Marju Baldursdóttur, Ferjan, var frumsýnt á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir stjórn nöfnu hennar, Kristínar Eysteinsdóttur, nýráðins leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur. Þar fjallar höfundur af harðri gagnrýni um samfélagsmálefni líðandi stundar, ekki síst jafnréttisbaráttu kynjanna. Þegar verkið hefst er hópur Íslendinga að stíga um borð í heldur hrörlega ferju af því að [...]

Hnípin þjóð í vanda

2020-01-30T15:10:03+00:0024. janúar 2010|

Inni í geysistóru fuglabúri híma sjö manneskjur. Við og við hellast yfir þær stórir haugar af gluggaumslögum sem þær síðan vaða í. Haugarnir hækka og hækka. Þær gera fálmkenndar tilraunir til að taka á málunum, flokka umslögin, raða þeim, en sumir halda bara á þeim í fanginu; æ stærri fangfylli. Meðan á þessu gengur segja [...]

Er Valgerður betri María en Júlía?

2020-01-31T15:19:50+00:009. maí 2009|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi söngleikinn sígræna Söngvaseið á stóra sviði Borgarleikhússins í þýðingu Flosa Ólafssonar. Gersamlega óþarft er að tíunda efni og boðskap þessa verks sem allir þekkja, það eina sem spurt er um er hvernig tekst til með sviðsetninguna: Nær hún máli miðað við fyrri uppsetningar sem fólk hefur séð hérlendis og erlendis [...]