Hvenær verður vani vandi?
Pör sem eru að hefja sambúð eða búin að búa saman um skeið gætu haft gagn af að sjá sýningu Venjulegs fólks í Hafnarfjarðarleikhúsinu á verki Kristjáns Þórðar Hrafnssonar, Fyrir framan annað fólk. Það var frumsýnt í gærkvöldi undir stjórn Melkorku Teklu Ólafsdóttur og bregður ljósi á sambúðarvanda sem getur verið erfitt – eða “asnalegt” [...]