Veruleikaflótti í raunveruleikaþætti
Það er stöðugur höfuðverkur umsjónarmanna með leiklistarnemum að finna verk sem passar fyrir hópinn, helst þannig að öll fái þau gott efni til að glíma við. Í ár hélt leikarabraut LHÍ leikritasamkeppni, eins og hefur verið gert stöku sinnum áður, og verkið sem sigraði, Við deyjum á Mars eftir Jónas Reyni Gunnarsson, er nú sýnt [...]