Ævintýri í undirheimum

2019-03-18T10:36:08+00:0014. janúar 2018|

Ein af kærkomnu nýju barnasýningunum í höfuðborginni er á splunkunýju íslensku verki, Skúmaskoti eftir Sölku Guðmundsdóttur, sem sýnt er á litla sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Gréta Kristín Ómarsdóttir sem átti hina eftirminnilegu sýningu Stertabendu í Þjóðleikhúsinu í hittifyrra. Í Skúmaskoti eru systurnar Rúna (Þórunn Arna Kristjánsdóttir) og Vala (Vala Kristín Eiríksdóttir) með vinsælt snapp saman [...]