Þú ert hér://Tag: Skáldsögur

Hústrú Ólöf og hennar fólk

2026-09-17T09:52:39+00:0017. september 2026|

Sigríður Hagalín Björnsdóttir: Vegur allrar veraldar. Benedikt 2025. Fyrir síðustu jól kom út bók Sigríðar Hagalín Björnsdóttur Vegur allrar veraldar, skálkasaga, sem er sjálfstætt framhald Hamingju þessa heims, riddarasögu, sem út kom fyrir fimm árum. Þessi greinarstúfur fjallar að mestu um þá síðarnefndu en ekki verður samt hjá því komist að hafa þær báðar undir [...]

Nýtt sjónarhorn

2025-02-13T10:26:21+00:0013. febrúar 2025|

Maó Alheimsdóttur: Veðurfregnir og jarðarfarir. Ós Pressan 2024. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2025. Eins og alltaf þegar ég þarf að koma reglu á heiminn stóð ég mig að því að skrifa lista á meðan ég las Veðurfregnir og jarðarfarir, fyrstu skáldsögu Maó Alheimsdóttur. Listinn bar yfirskriftina „Skrítin orð til að tékka seinna“ [...]

Þeysireið inn í hyldýpi hugans

2025-02-13T10:39:50+00:0013. febrúar 2025|

Jónas Reynir Gunnarsson: Múffa. Mál og menning, 2024. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2025 Jónas Reynir Gunnarsson er fæddur árið 1987 og ólst upp í Fellabæ á Austurlandi. Múffa  er fimmta skáldsaga Jónasar Reynis, en auk skáldsagna hefur hann gefið út þrjár ljóðabækur. Hann hefur verið iðinn við kolann síðan fyrsta bók hans [...]

Brot úr Friðsemd

2024-12-03T10:00:16+00:003. desember 2024|

Eftir Brynju Hjálmsdóttur  Brot úr skáldsögunni Friðsemd. Benedikt gefur út. Þótt ég hafi ekki kveikt á nafninu einmitt þarna þegar Palli nefndi það, hafði ég alveg heyrt um SELÍS. Og ég hafði auðvitað heyrt um Eldberg Salman Atlason, allir höfðu heyrt um hann sem á annað borð höfðu einhvers konar vit í kollinum. Á þessum [...]

Brot úr Moldin heit

2024-11-26T09:40:18+00:0026. nóvember 2024|

Eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur. Brot úr skáldsögunni Moldin heit. Drápa gefur út.   ég er mjög hrifinn af því hvernig þú hreyfir þig takk *andar hratt eftir áreynsluna* hátturinn er svo frjálslegur eða …stíllinn eða hvað maður segir já einmitt …   að minnsta kosti miðað við hvernig ég hugsa um þessa … mm … [...]

Brot úr Múffu

2024-11-20T16:00:01+00:0021. nóvember 2024|

Eftir Jónas Reyni Gunnarsson. Brot úr skáldsögunni Múffa. Forlagið gefur út.   Viku áður en Bjössi fór frá Ölmu vaknaði hún við hljóð fyrir utan svefnherbergisgluggann. Það heyrðust skruðningar, eins og verið væri að róta í ruslinu eða runnabeðinu. Það var eins og einhver væri að grafa sig upp úr myrkrinu bak við augnlok hennar. [...]