„Í góðsemi vegur þar hver annan“

2022-12-30T10:36:38+00:002. desember 2022|

Myndlistarmaðurinn Sigurður Ámundason frumsýndi í gærkvöldi leikrit sitt Hið ósagða í Tjarnarbíó, svartan gamanleik sem afhjúpar af miskunnarleysi sjálfselska beiskju nútímafólks. Sjálfur leikur Sigurður eitt hlutverkið í leiknum auk þess sem hann bæði leikstýrir og framleiðir sýninguna. Kvikmyndin sem við sjáum á baktjaldi er eftir hann líka, óteljandi klipp héðan og þaðan í ógnarhraðri framrás [...]