Veruleikur

2019-06-12T12:21:28+00:0018. nóvember 2013|

Á mektarárum fringe-leikhúsanna á áttunda áratugnum í London var maður sífellt á leiksýningum á einhverjum fáránlegum stöðum og þess minntist ég í gærkvöldi  þegar ég var í hópi fólks að leita að Dansverkstæðinu við Skúlagötu, príla upp og niður stiga og inn og út eftir ranghölum sem ekki leiddu neitt. Loks voru réttar útidyr opnaðar [...]