Rachel og Þórir
Tveir ungir leikarar fengu að láta ljós sitt skína á litlum sviðum stóru leikhúsanna í vikunni sem leið. Þóra Karítas Árnadóttir túlkaði bandaríska píslarvottinn Rachel Corrie í lífi og dauða á litla sviði Borgarleikhússins undir stjórn Maríu Ellingsen, en á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins lék Þórir Sæmundsson – ja, einna helst lausum hala og laut engri utanaðkomandi [...]