„Ódauðleg er ástin og eilíf hamingjan“
Sviðslistahópurinn Óður frumsýndi í gærkvöldi í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll vinsælu gamanóperuna Rakarann í Sevilla sem Gioachino Rossini samdi upp úr gamanleik eftir Frakkann Pierre Beaumarchais og frumsýndi 1816 í Róm. Sópraninn og tenórinn, Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason, þýða textann á einstaklega lipurt, fallegt og fyndið málfar sem nýtur sín vel með tónlistinni og [...]