Oh, my Cod!
Það var mikið hrópað og hlegið í sal 1 í Háskólabíó þegar Afturámóti frumsýndi rapp/rokk-óperuna Þorskasögu eftir Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson. Hafsteinn leikstýrir sjálfur en hefur Kristin Óla Haraldsson með sér sem dramatúrg. Glitrandi hreisturbúninga hannaði Hulda Kristín Hauksdóttir, tónlistarstjóri er Kolbrún Óskarsdóttir, afar mínimalíska leikmynd hannaði Egle Sipaviciute en kórstjórn sá Hanna Ragnarsson [...]