Sagan af köllun skáldsins

2019-08-13T14:35:55+00:0027. desember 2011|

Heimsljós, skáldsaga Halldórs Laxness í fjórum bindum um skáldið og öreigann Ólaf Kárason, er margra eftirlæti. Leikgerðasmiðir hafa verið meðal aðdáenda hennar, og nokkra Ólafa hefur maður horft á gegnum tíðina þjást uppi á sviði undan þungum örlögum: Hjalta Rögnvaldsson í Þjóðleikhúsinu, Helga Björnsson og Þór Tulinius í Borgarleikhúsinu, og núna síðast tvíeykið Hilmi Snæ [...]