Milljón á sekúndu
Nígeríusvindlararnir svonefndu hafa tekið upp nýja fjáröflunaraðferð. Í stað ópersónulegra (en hjartaskerandi) bænarbréfa frá mönnum sem af pólitískum ástæðum komast ekki í peningana sína eru þeir farnir að senda persónuleg bréf á ákveðið fólk. Til dæmis fékk ég á dögunum tilkynningu um að virtur aðili af Aðalsteinsdóttir-ættinni, mister Alan Aðalsteinsdóttir, hefði fallið frá í Afríku [...]