Afturgengin ást
Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gær um það bil tvö þúsund og fimmhundruð ára ára klassík, Medeu eftir Evripídes, á nýja sviði Borgarleikhússins undir stjórn Hörpu Arnardóttur. Leikritið segir harmsögu hinnar goðkynjuðu Medeu sem fórnar bróður, föður og föðurlandi fyrir ástina og hefnir sín á grimmúðugasta hátt þegar hún sjálf er svikin af ástinni. Í nýrri [...]