Þú ert hér://Tag: Jólabækur 2024

Brot úr Eldri konum

2024-12-05T13:43:29+00:005. desember 2024|

Eftir Evu Rún Snorradóttur. Brot úr skáldsögunni Eldri konur. Benedikt gefur út. Rannveig 1999 Ég var sextán, hún á óræðum fullorðinsaldri. Við sátum úti að reykja, snemmsumars, í hvarfi á bak við bygginguna. Það var mánudagur og sól og við sátum í vandræðalegri þögn, hvað áttum við tvær svo sem að tala um? Hún rauf [...]

Brot úr Friðsemd

2024-12-03T10:00:16+00:003. desember 2024|

Eftir Brynju Hjálmsdóttur  Brot úr skáldsögunni Friðsemd. Benedikt gefur út. Þótt ég hafi ekki kveikt á nafninu einmitt þarna þegar Palli nefndi það, hafði ég alveg heyrt um SELÍS. Og ég hafði auðvitað heyrt um Eldberg Salman Atlason, allir höfðu heyrt um hann sem á annað borð höfðu einhvers konar vit í kollinum. Á þessum [...]

Brot úr Kuli

2024-12-03T09:45:10+00:0029. nóvember 2024|

Eftir Sunnu Dís Másdóttur. Brot úr skáldsögunni Kul. Forlagið gefur út. Hákon hefur mjög þægilega nærveru. Hann brosir mikið á meðan hann talar en það virkar ekki falskt og ekki heldur eins og hann sé að reyna að knýja fram viðbrögð hjá okkur, rukka okkur um glaðværð. Frekar eins og honum líði vel og hann [...]

Brot úr Moldin heit

2024-11-26T09:40:18+00:0026. nóvember 2024|

Eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur. Brot úr skáldsögunni Moldin heit. Drápa gefur út.   ég er mjög hrifinn af því hvernig þú hreyfir þig takk *andar hratt eftir áreynsluna* hátturinn er svo frjálslegur eða …stíllinn eða hvað maður segir já einmitt …   að minnsta kosti miðað við hvernig ég hugsa um þessa … mm … [...]

Brot úr Múffu

2024-11-20T16:00:01+00:0021. nóvember 2024|

Eftir Jónas Reyni Gunnarsson. Brot úr skáldsögunni Múffa. Forlagið gefur út.   Viku áður en Bjössi fór frá Ölmu vaknaði hún við hljóð fyrir utan svefnherbergisgluggann. Það heyrðust skruðningar, eins og verið væri að róta í ruslinu eða runnabeðinu. Það var eins og einhver væri að grafa sig upp úr myrkrinu bak við augnlok hennar. [...]