Kóngsríki sé mitt leiksvið
Sigurður Skúlason frumsýndi í fyrrakvöld í Þjóðleikhúskjallaranum einleik sinn og Benedikts Árnasonar leikstjóra, Hvílíkt snilldarverk er maðurinn, með bútum úr höfundarverki Shakespeares í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Þeir félagar hafa valið glæsilegar einræður og samtöl úr mörgum þekktustu verkum leikskáldsins og þó að flestar persónurnar væru karlkyns hikaði Sigurður ekki við að bregða sér í kvenhlutverk, [...]